Treystið okkur! Við erum myndlistarmenn

Bókin Treystið okkur! Við erum myndlistarmenn, eða Trust us! We are artists, er tileinkuð stórum hópi ungra myndlistarmanna sem tóku virkan þátt í sýningarhaldi og verkefnum gegnum gallerí Crymo.

Í bókinni er leitast við að skrásetja ákveðið tímabil og stemningu sem skapaðist með tilkomu gallerísins en Crymo var rekið af ungum listamönnum í tæp tvö ár. Í bókinni eru kynntir til sögunnar þeir myndlistarmenn sem voru framan af meðlimir í galleríinu og einnig er stutt yfirlit yfir nokkra listamenn sem héldu einkasýningar í Crymo.

Crymo opnaði í júní árið 2009 á Laugavegi 41a, sem sýningarrými og gallerí fyrir unga myndlistarmenn. Stofnendur voru þær Solveig Pálsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir sem báðar útskrifuðust úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2009.

Á sínum stutta og hraða ferli tók Crymo þátt í listamessum á borð við Supermarket og Alt_Cph, sem og í menningarhátíð um Ísland í Varsjá. Sýningarnar sem settar voru upp í gallerínu voru 87 talsins og þeir listamenn sem sýndu þar um 100. Í Crymo áttu sér einnig stað allskyns uppákomur, s.s. fjöldi tónleika, ljóðaviðburða, leiksýninga og svo mætti lengi telja.

Myndlistarmennirnir sem sáu um uppsetningu og ritstjórn bókarinnar eru Arna Óttarsdóttir, Kolbrún Ýr Einarsdóttir, Kristín Rúnarsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir, í samvinnu við Crymogeu bókaútgáfu.

Textaskrif og viðtöl tóku ásamt ritstjórn, Berglind Helgadóttir, Björk Konráðsdóttir, Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir Hirt, Oddný Björk Daníelsdóttir, Una Baldvinsdóttir og Þórður Grímsson.

Bókin er gefin út af Crymogea og styrkt af Reykjavíkurborg

Ummæli eru ekki leyfð.