Rými málverksins

GRASRÓT IX Í NÝLISTASAFNINU

Sýningin stendur til sunnudagsins 6. nóvember

Bryndís Björnsdóttir // Helga Björg Gylfadóttir // Irene Ósk Bermudez // Klængur Gunnarsson // Kolbrún Ýr Einarsdóttir // Kristín Rúnarsdóttir // Sigríður Tulinius // Sigurður Atli Sigurðsson
Sýningarstjóri: Kristjana Rós Guðjohnsen

Sýningar undir heitinu Grasrót hafa verið haldnar árlega í Nýlistasafninu frá árinu 2000, að örfáum árum undanskildum, og er sýningin í ár sú níunda í röðinni. Frekari upplýsingar/more info.

Leiðsögn og viðburður

Laugardaginn 29 október klukkan 14:00 mun Kristjana Rós Guðjohnsen vera með leiðsögn um sýninguna Grasrót IX í Nýlistasafninu ásamt nokkrum listamönnum sýningarinnar. Kristjana mun tala um einstök verk á sýningunni, spjalla við þá listamenn sem eru viðstaddir og svara spurningum gesta.

Klukkan 15:00 sama dag mun Bryndís Björnsdóttir standa fyrir viðburði í safninu. I(m)material girl mun kalla til aðila sem koma að sýningunni, safninu og safneigninni og mynda með með þeim samræðuhring.

Viðburðirnir eru opnir almenningi og aðgangur ókeypis.                                          –> Nánari upplýsingar á vefsíðu Nýlistasafnins.

Treystið okkur! Við erum myndlistarmenn

Bókin Treystið okkur! Við erum myndlistarmenn, eða Trust us! We are artists, er tileinkuð stórum hópi ungra myndlistarmanna sem tóku virkan þátt í sýningarhaldi og verkefnum gegnum gallerí Crymo.

Í bókinni er leitast við að skrásetja ákveðið tímabil og stemningu sem skapaðist með tilkomu gallerísins en Crymo var rekið af ungum listamönnum í tæp tvö ár. Í bókinni eru kynntir til sögunnar þeir myndlistarmenn sem voru framan af meðlimir í galleríinu og einnig er stutt yfirlit yfir nokkra listamenn sem héldu einkasýningar í Crymo.

Crymo opnaði í júní árið 2009 á Laugavegi 41a, sem sýningarrými og gallerí fyrir unga myndlistarmenn. Stofnendur voru þær Solveig Pálsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir sem báðar útskrifuðust úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2009.

Á sínum stutta og hraða ferli tók Crymo þátt í listamessum á borð við Supermarket og Alt_Cph, sem og í menningarhátíð um Ísland í Varsjá. Sýningarnar sem settar voru upp í gallerínu voru 87 talsins og þeir listamenn sem sýndu þar um 100. Í Crymo áttu sér einnig stað allskyns uppákomur, s.s. fjöldi tónleika, ljóðaviðburða, leiksýninga og svo mætti lengi telja.

Myndlistarmennirnir sem sáu um uppsetningu og ritstjórn bókarinnar eru Arna Óttarsdóttir, Kolbrún Ýr Einarsdóttir, Kristín Rúnarsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir, í samvinnu við Crymogeu bókaútgáfu.

Textaskrif og viðtöl tóku ásamt ritstjórn, Berglind Helgadóttir, Björk Konráðsdóttir, Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir Hirt, Oddný Björk Daníelsdóttir, Una Baldvinsdóttir og Þórður Grímsson.

Bókin er gefin út af Crymogea og styrkt af Reykjavíkurborg

Æringur 2011

Opnun myndlistarhátíðarinnar Ærings verður að Aðalstræti 16, Bolungarvík laugardaginn 2.júlí frá kl. 17:00-19:00.
Sýningin er opin miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 14:00-17:00 og stendur til sunnudagsins 31. júlí.

Vefsíða Ærings

Eitthvað í þá áttina

Sýning um kortagerð, skrásetningu og staðsetningu í Listasafni Reykjanesbæjar.

Á sýningunni er reynt að varpa ljósi á mismunandi nálgun og vinnuaðferðir listamanna sem fjalla um kort, staðsetningu og skrásetningu í verkum sínum.  Samtímis er fléttað saman landfræðilegum  kortum  og öðru minnisverðu, frá Byggðasafni Reykjanesbæjar, sem sýna  staðhætti á Reykjanesi og skráningu gegnum tíðina. Teflt er  saman skráningarþörf úr listheimi og raunheimi í þeirri von að úr verði spennandi samtal.
Eftirfarandi listamenn eiga verk á sýningunni;

Ásta Ólafsdóttir, Bjarni H. Þórarinsson, Didda Hjartardóttir Leaman, Einar Garibaldi Eiríksson, Etienne de France, Eygló Harðardóttir, Gjörningaklúbburinn, Hildigunnur Birgisdóttir, Hreinn Friðfinnsson, Inga Svala Þórsdóttir, Ingirafn Steinarsson, Katrín Sigurðardóttir, Kristinn E. Hrafnsson, Kristinn G. Harðarson, Kristín Rúnarsdóttir, Pétur Örn Friðriksson, Sólveig Aðalsteinsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir. Sýningarstjórar eru Didda H. Leaman og Inga Þórey Jóhannsdóttir.

Sýningin stendur til 22. ágúst. Safnið er opið virka daga kl. 12-17 og um helgar 13-17.

Grunnplan í Crymo

 

13. 11. – 25. 11. 2010

Sýningin er unnin í samvinnu við Kolbrúnu Ýr Einarsdóttur.

Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 13.00-17.00.

Gallerí Crymo, Laugavegi 41a, Reykjavík.

 

Færi

Þann 15. júlí sl. opnuðum ég og Þorgerður Ólafsdóttir sýningu á Vesturveggnum í Bistrói Skaftfells á Seyðisfirði.

Sýningin stendur til 10. ágúst og er opið alla daga. –> Skaftfell

ÆRINGUR 2010

opnun í gallerí crymo 8. janúar 2010 kl. 20

módel sýningarrými gallerí crymo 1:20